Brak gefur út Quadruplos

Brak gefur út Quadruplos

Hljómsveitin Quadruplos skipuð þeim Magnúsi Birki Skarphéðinssyni og Tómasi Þórarni Magnússyni gefur út sínu fyrstu plötu í dag föstudaginn 23. apríl. Brak hljómplötur í samstarfi við Weirdcore gefa út gripinn í takmörkuðu, númeruðu upplagi sem mun fást í helstu plötubúðum landsins.

Sveitin hefur verið starfandi í núverandi mynd í um það bil eitt ár og hefur á þeim tíma getið sér gott orð sem ein kröftugasta tónleikasveit landsins á sviði raf og danstónlistar. Plata þeirra inniheldur átta lög sem er hvert af öðru fjörugra og á án efa eftir að fá fólk til að hrista rassinn og dilla hausnum í hinum ýmsu veislum landsins.

More on... ,

Brak Player